top of page

Viðburðardagatal

Viðburðadagatal Lifandi Ráðgjafar

 

 

Næstu viðburðir

Námskeið fyrir fagfólk

Námskeiðið fór vel af stað og verður boðið aftur upp á foreldrafundi eftir áramót í janúar 2016.

Vímuefnaneysla barna og ungmenna  - áhættuþættir  – forvarnir – fjölskylduvinna

 

Staður: Öldugötu 23 

23. október 2015, kl. 8:30-16:20

9 kennslustundir

 

Námskeiðslýsing:

 

Fjallað verður um helstu áhættuþætti fyrir börn og ungmenni sem leiðast út í vímuefnaneyslu, frá fikti til fíknar. Jafnframt verður fjallað um hver áhrif vímuefnaneyslu einstaklings í fjölskyldum getur haft á aðra fjölskyldumeðlimi og fjölskyldukerfi.  Fjallað verður um þann veigamikla þátt í vinnu fagaðilans um hvernig efla megi seiglu barns og fjölskyldu/na þeirra og taka jafnframt mið af þeirri staðreynd að stór hópur barna eiga foreldra á tveimur heimilum og stundum stjúpforeldra á þeim báðum.

Á námskeiðinu er bæði stuðst við klíníska reynslu, kenningar og rannsóknir.

Tengsl heimilisofbeldis og áfengis- og vímuefnasýki – viðbrögð og vinnulag.

 

Staður: Öldugötu 23 

13. nóvember 2015, kl. 8:30-16:20

9 kennslustundir

 

Námskeiðslýsing:

 

Fjallað verður um birtingamyndir ofbeldis í íslensku samfélagi. Velt upp spurningunni um af hverju eigi að spyrja um ofbeldi í skjólstæðinga vinnu.

Fjallað er um áfengis- og vímuefnasýki – einkenni og þróun sjúkdómsins. 

Fjallað um helstu einkenni sem hægt er að íhlutast í hjá einstaklingum sem búa við áfengis- og vímuefnasýki og heimilisofbeldi.  

Fjallað um söfnun gagna, nálgun í málum, viðtalstækni og hvernig best er að setja mál í farveg og gildi handleiðslu fyrir fagaðila.

Sterkar konur!

Er maðurinn þinn áfengissjúkur?
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 

Langar þig að tala við aðra í sömu sporum, deila þinni reynslu og læra nýja hluti? Þá er þetta fyrir þig! Kvennafundir einu sinni í viku kl. 15:00-17:00 alls sex skipti og hámark sex þátttakendur.

Leiðbeinandi: Jóna Margrét Ólafsdóttir, félagsráðgjafi MA

Staðsetning: Lágmúla 9

Sjáumst!

 
 
 
 
bottom of page